Færsluflokkur: Tölvur og tækni
15.4.2007 | 01:29
Stöðlun - taktur - ítranir
Eitt af faglegum áhugamálum mínum er verklag í hugbúnaðargerð. Ég hef nokkrum sinnum talað um þetta efni, lengi vel var ég helst fylgjandi XP (eXtreme Programming), og hef tekið margt þaðan með góðum árangri vil ég halda fram. Upp á síðkastið hef ég verið mest hallur undir svokallaða Straumlínuhugsun í hugbúnaðargerð (Lean Software Development), talaði meðal annars um þetta á vegum Agile hópsins fyrir nokkru.
Það er ýmislegt sameiginlegt með XP og Lean Software Development (LSD...tilviljun??) . Það er ekki skrýtið, enda áhrifavaldarnir að miklu leyti þeir sömu frá landi hinnar rísandi sólar, Toyota. Eitt af þessum atriðum er áhersla á ítranir (iterations). Alls staðar þar sem straumlínuhugsun kemur við sögu, hvort sem er í framleiðslu eða þróun, er mikil áhersla á takt og samhæfingu (cadence and synchronization). Til að liðsheild virki sem liðsheild, þá þarf hún að geta samhæft aðgerðir. Áhrifaríkasta leiðin til þess er að koma á takti sem hentar viðkomandi verkefni. Það getur verið allt frá nokkrum sekúndum (50 sek á hverja verkstöð hjá Toyota), upp í mánuði, eins og tími milli stærri útgáfa af hugbúnaðarkerfum.
Það eru nokkrar ástæður fyrir því að taktur er svo áhrifaríkur. Ein þeirra er stöðlun á verkstýringaratriðum. Einn af stærri verkstýringaratriðum í hugbúnaðargerð er að ákveða hvað á að gera næst, í hvaða röð, og á hve löngum tíma. Þegar taktur er til staðar (t.d. mánuður), þá er fyrirfram búið að taka ákvörðun um "á hve löngum tíma". Þá er "bara" eftir að ákveða hvað á að gera næst, og í hvaða röð. Það eru aðrir kostir við taktinn, sem ég ætla ekki að tíunda í þetta skipti.
Um bloggið
Guðlaugur Stefán Egilsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar